Komin tími á nýtt blogg..!!
Jújú fjölskyldan hefur mikið stækkað og fæddist lítil prinsessa þann 25. janúar. Heilbrigð og auðvitað gullfalleg... Stelpuveldið fer stækkandi...
Okkur hefur öllum heilsast þokkalega vel og verðum alltaf betri með tímanum!!
Indíana hefur haft það rosalega notalegt en er farin að vilja komast aftur heim.. þá sérstaklega bara til að fara í leikskólann... Enda eirðarleysið alveg að fara með þessa elsku...
Svo styttist nú óðum að við komum suður aftur... Bara í næstu viku... Komum þá örugglega á miðvikudaginn eða fimmtudaginn...
Jæja svo er mín komin í myspaceið... www.myspace.com/annagreta87
Endilega adda mér ef ég er ekki þegar búin... En er svona að læra.. enda Top manneskja sem kann ekki baun á þetta.. en þetta kemur!! hehehe
Pabbi á svo afmæli um helgina og verður haldið stórafmæli í tilefni af 50 árunum hans... sem verður bara gaman!!
Annars er voðalega fátt að frétta... viðurkenni að ég er nú ekki sú duglegasta að blogga en hef frekar verið að halda upp síðunum hjá stelpunum!! þannig flestar fréttir fara þangað...
En jæja kommenta svo... Kem með blogg fljótt aftur...
Anna Gréta....
Blogg!!
Hérna megin er ágætt að frétta... er komin 38 vikur + 6 daga og bíð bara og bíð eftir skottunni... sem greinilega ætlar ekkert að flýta sér... vonandi kemur hún bara á morgun þessi elska!! þá komin 39 vikur eins og með Indíönu og meira að segja á fimmudegi líka eins og Indíana...
Er reyndar búin að vera með mikla verki og svaf þar afleiðandi eiginlega ekkert í nótt fyrir verkjum... svo ég vona að e-ð fari að gerast... svo er mæðraskoðun á morgun og sjáum hvernig hún fer... skelli því öllu inn á bumbusíðuna!!
En annars geri ég voðalega lítið... held það sé biðin sem er mest að fara með mig... enda orðin svoooo leið á þessu... vil bara fá litlu prinsessuna í hendurnar!!
Jæja ætla að finna mér e-ð að gera... en kem með inn allt um mæðraskoðunina og það á morgun... en hendi því inn á bumbusíðuna...
Endurnýjuð könnun....
Over & Out...
Jæja....
Annars er ágætt að frétta... Ég bara bíð eftir að komast upp á fæðingardeild... En ekkert gerist.. er reyndar búin að vera með svolítið af samdráttum en ekki það mikla svo e-ð sé að fara að gerast... hundfúlt alveg... og líkaminn á mér gjörmsamlega að hrynja í sundur...
Annars er voðalega fátt að frétta... Geri orðið ekkert annað en að bíða.. svo...
En jæja ætla að skella mér í heitt Lavenderbað enn einu sinni.... sjá hvort það geri e-ð gagn... best að prófa öll "heimilisráðin"....
Anna Gréta óþolinmóða farin í bað.... Minni á nýja könnun!!
MUNIÐ AÐ KOMMENTA...
Nýtt bogg á nýju ári...
Vil samt byrja á því að óska ykkur öllum gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla...
Jæja þetta ár byrjar bara með spenningi og mikilli bið eftir þessari ungu dömu sem ætlar sko að láta fyrir sér fara... Og er að gera mömmu sína alveg uppgefna...
Byrjaði nú árið á að fara upp á FSA því þeir héldu að ég væri kannski komin með blóðtappa sem reyndist nú ekki vera það, sem betur fer.. En líklegast er ég þá bara illa marin á rifbeinunum eða brákuð... Sem er btw ógeðslega vont... Þannig ég vona að sú stutta fari nú að láta sjá sig...
Allavega hérna fyrir norðan er allt gott að frétta... ég er búin að taka til öll barnaföt og gera allt ready fyrir litlu prinsessuna...
Indíana hefur það líka rosalega gott og finnst fínt að vera svona í "sveitinni" hjá ömmu og afa... En hún saknar óskaplega leikskólans... Talar líka alveg um að hún vilji fara og hitta krakkana... Held það sé svona einna erfiðast fyrir hana... og hvað þá þegar það eru alveg tæplega 2 mánuðir í leikskólann aftur...
En við verðum bara dugleg að hafa hlutina skemmtilega svo hún gleymi sér smá...
En jæja skellti inn nýrri könnun....
Kv. Anna Gréta...
Nýtt ár gengur í garð....
það fer að bresta í nýtt ár... Það er komin 31. des og akkurat mánuður í prinsessuna mína...
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegt nýtt ár...
Megi nýja árið færa ykkur óvænta og spennandi tíma...
Hittumst svo öll galvösk á því nýja...
Áramótakveðjur Anna Gréta....

Leti í hámarki... :o(
Annars eru jólin búin að vera alveg ótrúlega róleg e-ð og þæginleg... Fékk ekkert margar gjafir en er alveg ótrúlega ánægð með allt mitt... Takk fyrir mig og takk líka fyrir Indíönu... Hún fékk fullt af fötum og e-ð af dóti líka... hún var líka rosalega ánægð með allt sitt... Var svo fyrstu jólin mín hjá tengdó og voru það bara mjög fín jól... enda svipaðar hefðir á heimilunum okkar!! :o)
Svo lögðum við í 'ann norður til mömmu á Annan í jólum... Er líka rosa notalegt að vera komin í þá sælu... og verðum við fram að fæðingu og mánuð eftir það...
Jæja ætli maður þurfi ekki að fara uppfæra fleiri síður... svo ég kveð að sinni...
Jólakveðja... Anna Gréta!!
Ný Könnun!!
Aðfangadagur...
Jólakveðja. Anna Gréta og fjölsk!!
4 dagar þangað til jólin koma!!
Allavega ég er hætt að vinna... komin í "fæðingarorlof" Ekkert smá lúxus en leiðist samt að vera svona ein yfir allan daginn... En það fer að koma jólafrí og svona þannig þetta verður í lagi...
Jólin eftir 4 daga segiði... Úff tíminn spænist áfram... koma jól eftir nokkra daga.. er bara ekki alveg að kaupa það sko.. en jólin mega alveg koma, það er allt reddý hérna nema skreyta tréið svo ég er vel slök...
Þarf svo að fara að pakka endalaust mikið niður til að taka með norður því við verðum alveg fram í enda febrúar...
Verðum sem sagt aðfangadag og jóladag hjá tengdó og svo förum við norður snemma 26 des...
Jæja svo er ég komin 34 vikur... ekki nema 6 vikur eftir... nema snúllan láti nú sjá sig fyrr...Sem ég ætla rétt að vona...
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra... ætlaði bara svona rétt að láta vita af mér...
Kv. Anna Gréta
My true love....
Held hreinlega að ég sé búin að finna ástina í mínu lífi... Mín eina sanna ást... Veit nú ekki alveg hvort ég vilji opinbera hana strax... en fyrir ykkur skal ég gera það.... Nýja ástin fer með mér allt... fer með mér hvert sem er... þið getið rétt ímyndað ykkur hvað við elskum hvort annað.... Þetta er umhugsunarlaust minn sálufélagi....
Hvað verður um Danna... Spurning... ?? Hann tók nú ekkert vel í þetta fyrst.. en skilur mig svo fullkomnlega núna... verð hreinlega að láta hjartað ráða... þið vitið ekki hvað er erfitt að hemja sig.... En í dag er Danni sáttur við mig og nýju ástina....
Þetta er hin eina sanna.. My true love....
Ástarkveðja... Anna Gréta....
Vó soldið væmið blogg... en hvað um það....hahahaha!!!
15 dagar til jóla.... :o)
Úúúfff... búin að vera lengi vel að pæla hvað ég á að skirfa... og veit ekkert hvað ég á að skrifa...![]()
Eitt er samt víst að það eru að koma jól og mig hlakkar svo til að ég get hreinlega ekki beðið...
Ég er búin að...
- kaupa allar jólagjafir
- pakka inn gjöfunum
- þrífa alla íbúðina
- skreyta allt
- búin að baka næstum allt
Hhummm!! held það sé þá allt komið... á bara eftir að skreyta jólatréið á þorláksmessu...
Ég er svo búin að baka marengstoppa og svolítið af sörum... ætla svo að baka meira af þeim og í dag verður bakað piparkökur...
Og ekki nóg með það... bakaði örugglega hátt upp í 100 sörur og setti krem á þær og vitið kremið var óætt... hreint ógeðslegt... svo sörurnar mínar enduðu ALLAR í ruslinu.... Mín sko nett pirruð... En bakaði eina uppskrift í gærkvöldi og hún tókst...
Jólin mega bara fara að koma... heheh
Ég er enn alltaf að vinna... er samt enn í fríi á þriðjud og miðvikud.... hugsa líka að ég fari bara að hætta þessu... hugsa að ég vinni bara fram að 19. des
Langar samt eiginlega ekkert að hætta... finnst svo gaman að mig langar að vera þarna enn.... á eftir að sakna þeirra... verð bara tíður gestur í vinnunni minni... hahaha!!
Minni á nýja könnun!!!
En jæja orðið hundleiðinlegt röfl hérna.... Verðið að commenta annars nenni ég þessu ekki lengur...
Anna Gréta...
