15 dagar til jóla.... :o)
Úúúfff... búin að vera lengi vel að pæla hvað ég á að skirfa... og veit ekkert hvað ég á að skrifa...![]()
Eitt er samt víst að það eru að koma jól og mig hlakkar svo til að ég get hreinlega ekki beðið...
Ég er búin að...
- kaupa allar jólagjafir
- pakka inn gjöfunum
- þrífa alla íbúðina
- skreyta allt
- búin að baka næstum allt
Hhummm!! held það sé þá allt komið... á bara eftir að skreyta jólatréið á þorláksmessu...
Ég er svo búin að baka marengstoppa og svolítið af sörum... ætla svo að baka meira af þeim og í dag verður bakað piparkökur...
Og ekki nóg með það... bakaði örugglega hátt upp í 100 sörur og setti krem á þær og vitið kremið var óætt... hreint ógeðslegt... svo sörurnar mínar enduðu ALLAR í ruslinu.... Mín sko nett pirruð... En bakaði eina uppskrift í gærkvöldi og hún tókst...
Jólin mega bara fara að koma... heheh
Ég er enn alltaf að vinna... er samt enn í fríi á þriðjud og miðvikud.... hugsa líka að ég fari bara að hætta þessu... hugsa að ég vinni bara fram að 19. des
Langar samt eiginlega ekkert að hætta... finnst svo gaman að mig langar að vera þarna enn.... á eftir að sakna þeirra... verð bara tíður gestur í vinnunni minni... hahaha!!
Minni á nýja könnun!!!
En jæja orðið hundleiðinlegt röfl hérna.... Verðið að commenta annars nenni ég þessu ekki lengur...
Anna Gréta...
