Afhverju er allt svona DÝRT... ???
Afhverju er allt svona ógeðslega dýrt hérna á Íslandi ???? Veit það einhver?? þá skaltu vinsamlegast gefa þig fram!!
Já sko í dag var ég að flokka myndir í tölvunni sem þarf að framkalla og þetta eru nákvæmlega 1152 myndir takk fyrir!!! Gæti hugsanlega framkallað meira en lét það duga!! já kostnaðurinn á bakvið það!!! Humm!! sko það kostar mig sem sagt 38.016 kr... Já svona frekar dýrt!! En þar sem að ég er svo góður díler þá get ég fengið þetta á 22.000 kr.... Sko mína!!! en það er líka peningur svo ég verð kannski að bíða með það aðeins!! þá allavega fram að næstu mánaðarmótum!!
Svo líka það að búa þá þarf að kaupa í matinn og hérna fer alveg svakalegt magn af mat á mánuði... Já hver einasta búðarferð kostar mig alltaf um 10.000 kr... BILUN og ekkert annað... Ég kemst stundum út úr búðinni með mat fyrir 5.000 kr... Þannig að ég vona skatturinn á matnum lækki eins og samfylkingin lofaði.. Held það hafi verið hún.. annars þá einhverjir!!
Allavega ef þið pælið í því í hvað peningurinn ykkar fer í þá endar hann einhversstaðar þar sem þú veist ekki rassgat í hvað hann fór!! Óþolandi í einu orði sagt og ekki segja mér það að ÞÚ hafir aldrei lent í því...Piff..
En ég er farin... í mína peningafílu... Takk fyrir!!
Koma svo!! Allir að commenta!!
Það kostar þó ekki peninga!!
Over & Out
Anna Gréta!!
27. október
Já svo ætla ég að skella mér í laufabrauð um 17. nóvember svo görls on Svalbó verið viðbúnar því ég er að koma... Já ég er líka að hugsa um að halda aðeins upp á smá afmæli og er þá ekki málið að skella sér á THE Greifann...... það held ég.. ...Eða vitið þið um e-ð annað á Akureyri..... Uhh örugglega ekki eins og ég hélt.. Svo við förum bara á Greifann.... Þá er það ákveðið...
Ef þú telur þig vera mér náin þá endilega kommentaðu og ég býð þér að vera með... Var að hugsa um vinkonurnar og svo auðvitað kjútí frænkurnar mínar Didds og Grétu...
Já talandi um jólin þar sem ekkert og já bókstaflega ekkert annað kemst að þá veit ég ekkert hvernig á að hátta jólunum í ár.. Hvað finnst ykkur??? Sko ég vil helst vera á báðum stöðum þ.a.s. að vera kannski í Rvk á jólunum og á Aku um áramót eða öfugt... En ég get auðvitað ekki tekið ein ákvörðun um það...
Skítaveður!!! Já það er skítaveður hérna, rok og rigning að húsið titrar... Össs!! Væri frekar til í snjóinn fyrir norðan.. Gæti þá farið með Indíönu út á þotu, en hérna er ekki einu sinni girnilegt að fara út... Og það er búið að vera svona bara þó nokkuð lengi svo ég er orðin algjör innipúki sem geri þá lítið annað en að laga til.. Heheh!!
Ég er líka hreint ánægð með ykkur!! Ef ég er örugglega að skilja allt rétt... Já það eru bara þó nokkar að koma suður, ja eða allavega tvær sem ég veit um... Sko hún Linda er að koma í kvöld ef veðrir stoppar ekki allt og svo Didda litla næstu helgi... Og svo var Gréta frænka e-ð að tala um það líka... Svo það er nóg félagsskapur framundan!!
Munið að commenta!!! Það skaðar engann!
Over & Out
Anna Gréta með sínar miklu pælingar!!!
Eigið góða helgi bollurrassarnir mínir...
Jólin nálgast.. Og ÉG hlakka óendanlega mikiđ til...
Ég er hreinlega búin að missa mig í jólagleðinni þegar ég labbaði fyrst inn í nýja IKEA...
HVER VILL KOMA MEÐ MÉR Í IKEA FYRIR JÓLIN..??
Já skellti mér fyrir rúmlega viku síðan með Hörpu og hef verið taugaveikluð yfir jólunum síðan... Ég hreinlega mokaði fullt af jólaskrauti ofan í körfuna mína... Keypti mér allt settið á blessaða jólaréið mitt... keypti svo líka stórar kúlur, jólapappír og pakkabönd... Hreinlega missti mig... Já mig hlakkaði meira að segja svo svakalega til þannig að ég velti lengi fyrir mér hvað ég gæti gert til að undirbúa og byrja aðeins á jólaundirbúningi... Já og líka án þess að gera mikið... Jú jú mín þræddi böndin á kúlurnar!! Heheh! það var svona það eina sem mér datt í hug og setja þær í kassa... Setti líka borða á stóru kúlurnar og gerði þær svaka fínar... Ég er alveg ótrúleg!! En það var fyrir viku síðan svo núna er ég búin að vera að iða í skinninu því mig langar svo svakalega til að gera e-ð meira... Já ég er búin að kaupa allt í kortagerð og ætla að föndra öll jólakort... Meira að segja í gær þá bjó ég til eitt... Já eins og ég segi ég er alveg að missa mig... Ég er líka farin að stressa mig á jólagjöfum... Hvað er að mér??? Vildi að ég gæti fengið svar!!! hehe! Það eru líka bara 65 dagar til jóla..
En nóg um það... Mamma, pabbi og stelpurnar eru að koma núna á sunnudaginn og verður það fjör... Ætli maður bjóði ekki liðinu í mat...
Hef e-ð gómsætt handa þeim..
En svo ætlum við að skella okkur í myndatöku núna 28. október... Já það er líka svona enn einn hluturinn sem tengist jólunum... Já ætla að setja mynd í öllt kort.. Svo ÞÚ FÆRÐ MYND í þitt kort..
En nóg um skreytingu... Þið þarna fyrir norðan ég næ örugglega að toppa JMJ kallinn... Heheh...En varð hreinlega að koma þessu frá mér því ég var með í maganum í allt gærkvöldi.. Heheh
Annars voða gott að frétta.. Alltaf nýjar myndir af Indíönu á www.barnaland.is/barn/27594 svo endilega kíkja á það og svo var ég líka að setja myndir af hundunum hérna í mínu myndaalbúmi..
Annars My friend ef þið eruð að koma suður þá endilega látið mig vita... Líka alveg í lagi að koma og kíkka á mig er farið að leiðast að enginn komi til mín... Buhuh...
Komið nýtt Quiz um mig... Er þarna efst uppi... Taktu þátt áður en þú yfirgefur svæðið..
Later folks!!
Anna Gréta
Nýtt blogg...
Já það er nú orðið alveg þó nokkuð síðan ég bloggaði seinast enda allt sem gerist hjá mér og okkur familíunni er nú allt saman ritað á heimasíðunni hennar Indíönu ( www.barnaland.is/barn/27594 )...
Annars er voða lítið að gerast hjá mér!!
Skellti mér nú í nýja IKEA í gær með Hörpu og Ásdísi... Og já talandi um það að missa sig gjörsamlega í jólaskrautinu.. Jáhh þá er það ÉG takk fyrir... já kom svo heim með tvö fulla haldapoka og ekki neitt venjulega haldapoka.. Neihh það voru sko allra stæðstu pokarnir... Múahaha... Ég held barasta að ég sé að missa mig í jólagleðinni... Ég er líka farin að hlakka svolítið til jólanna... Soldið snemma í þessu... En þá er allavega búið að kaupa jólakúlur, jólatrétopp, jólalengjur(perlu), jólaljósa krans, jólapappír, borða og svo krullubönd... Svo ég er nokkuð góð!!! Heheh
það er svo varla frásögufærandi hvernig dagurinn í dag er búin að vera!!! Já kl 11 í morgun fór ég á fyrirlestur hjá Dr. David Melumad sem framleiðir Volare vörurnar sem ég er að kynna... Og Jedúddamía!!! Já maðurinn er með sko töff hárgreiðslu... já hann er með svona rennisléttan skalla en samt eru hár neðst og svo safnar hann síðan topp á annari hliðinni og greiðir hann svo yfir skallann... En samt topp náungi...
Svo núna í kvöld fór ég og Danni á árshátíð hjá Volare og var alveg sælkeramáltíð... Já við fengum humarsúpu í forrétt, lambafille og naut í forrétt og svo súkkulaði köku og ís í eftirrétt... Svo var auðvitað fordrykkur... En Danni fékk ekkert hann var driverinn... Hehehe!!!
En jæja hef ekkert meira að segja í bili...
Over & out....
Anna Gréta...
Muna að commenta... Annars verð ég CRAZY...
ef ég á nú að nenna að blogga...
Ný skoðunarkönnun... Takið þátt...
Af hverju??
Afhverju er lífið ekki sanngjarnt...???
Afhverju þarf alltaf eitthvað að koma upp á í lífinu...???
Afhverju er lífið ekki frábært...???
Afhverju er maður vansæll í lífinu...???
AF HVERJU...????
28.septemer '06
Já ég ákvað að skella hérna inn smá bloggi... enda ef ég ætla að þykjast standa mig hérna þá verður nú e-ð að gerast hérna... og hana nú!!!
Það hefur svo sem ekkert spennandi verið að gerast hjá mér þessa dagana... Er aðalega búin að vera meira og minna heima hjá mér eftir að ég kom að norðan... Ég kíkti samt til mömmu í gær og líka á mánudaginn... Já þar sem mútta var í aðgerð þá verður maður að heimsækja hana... kíktum líka aðeins í Mosfellsbæinn...
Já svo í kvöld er Volare gestgjafafundur og ætla ég að reyna að skella mér á hann...
Verð samt að fara með Indíönu í kvöld á Barnaspítalann til að reyna að laga svefninn og hefur þetta því miður gengið svo svakalega erfiðlega að nú á að kenna henni að sofna sjálfri með hjálp frá Ingibjörgu svefnráðgjafa... Ég ætla fyrir guðs hönd að þetta gangi upp og kræst þið vitið ekki hvað ég er með stóran hnút í maganum mig kvíður svo fyrir...
En jæja ætlaði bara að hafa þetta létt og laggott...
Yfir & út... Anna Gréta taugahrúga...
Akureyri / Svalbarđseyri HERE I COME...
Halló...![]()
Já þið eruð ekkert að misskilja... Ég er á leiðinni til Akureyrar!!!
Blogga þegar ég kem til RVK.
Over & out
~Anna Gréta~
Aloha!!!
Já hvað segiði gott??? Já sko ég segi bara allt fínt... Hef voða lítið að segja en ákvað að skella hérna inn bloggi svo ég geti þá allavega sagt að ég sé dugleg að blogga og geri eitthvað af því...
Já seinustu daga hefur bara verið afskaplega rólegt hérna hjá okkur... Geri lítið annað en að sækja um vinnur á fullu og hringi á morgun í eina búð og svo er bara að bíða eftir svörum hjá nokkrum... Mig bara langar ekki að fara að vinna í verslun og ekki heldur á skyndibitastað... hef prófað bæði... Verð bara að finna vinnu helst fyrir mánaðarmótin...
Já svo fór ég með Indíönu til svefnráðgjafa núna á þriðjudaginn og fékk ég góð ráð til þess að láta hana sofna sjálf... Við prófuðum fyrst í gærkvöldi og það virkaði ekki en ef þetta gengur svona illa næstu 3-4 daga þá þurfum við að hafa samband við svefnráðgjafann aftur... Ég ætla svo að gera aðra tilraun í kvöld og sjá hvað setur... Bara krossleggja fingur og vona það besta... Ég er bara orðin svo þreytt og vantar virkilega að eiga kvöldið útaf fyrir mig!!!
En í morgun kíktum við aðeins á mömmumorgna... fórum og kíktum á Önnu Þóru myndlistarkonu... Já það sem hún var að gera var rosa flott.. hún var að þæfa ull og gerði allskonar sniðugt með hana... Já Hrabba vel á minnst hvernær ætlum við að þæfa eins og var ætlunin fyrir tja ári síðan...Hehe!!!
Síðan kíkti ég aðeins til Bryndísar ásamt Sigrúnu og börnum!!!
Vel á minnst eins og ég talaði um daginn þá er ég á fullu að scrappa og fór á þetta magnaða námskeið um daginn og var alveg geggjað sko!!! Og þetta er svo gegt gaman að maður verður HÚKT á þessu og vill helst kaupa alla búðina líka... þannig að eftir að við komum frá Bryndísi skellti ég mér í sturtu og kíkti yfir til Sigrúnar til þess að scrappa...
En jæja nenni þessu ekki... Ætla að fara að horfa á Melrose Place
Over & Out
Anna Gréta scrapp FAN...
Hámarks leti... :o(
Hæhæ!! Já ég vil biðjast velvirðingar á helv... letinni í mér... ![]()
Já ég veit að þið hafið alveg rétt á að skamma mig enda sé ég ekki ástæðu til annars... alveg hundlöt... Kræst!!
En hvað um það!!! Enda verið þið þá líka að commenta alveg á fullu ef þið viljið að ég geyspi ekki golunni hérna.. Hehe!! ![]()
En by the way!!! Á döfinni segðið?? Jújú hin elskulega og yndislega dóttir mín er jú farin að labba... aldrei þessu vant... Loksins segir maður bara... Þannig að núna eins og er þá stoppar barnið ekki...
En annars er ég bara búin að vera að mestu leyti að hanga heima og bora í nefið... Humm!!
Nei nei ég er búin að vera líka eitthvað slöpp... veit ekkert hvað amar að mér!!!
Já svo ætla ég að skella mér á morgun á scrap námskeið... Já held barasta að ég ætli að fara á fullt skrið að föndra...
Já og svo skemmtilega vill til þá er ég mikið að spá að fara að vinna eftir... Ja! sirka 1 1/2 árs frí frá vinnu... Já er búin að vera að sækja um svo nú er bara að bíða og sjá!!! Og býst ég þá líka við að setja Indíönu Mist til dagmömmu... Við förum á mánudaginn að kíkja á eina og ef okkur líst vel á þá fer hún...
Jæja kæru frænkur!!! Gréta & Diddú....
Ég held þið séuð ekkert að verða blindar...
En Anna Gréta sjálf er að koma til Akureyrar næstu helgi... Spennó....Jú jú vissi það...
En jæja over & out
Anna Gréta ![]()
Fyrsta nýja bloggiđ...
Anna Gréta
